This website or its third-party tools use cookies which are necessary to its functioning and required to improve your experience. By clicking the consent button, you agree to allow the site to use, collect and/or store cookies.
Please click the consent button to view this website.
I accept
Deny cookies Go Back

Thoranna.is

Marketing Consultation and Planning on the Digital Spectrum

  • Heim
  • Blogg
  • Ráðgjöf
  • Samstarf
  • Fyrirlestrar & fræðsla
  • Um
  • Samband
  • EN
You are here: Home / Archives for markhópur

Að kenna viðskiptavininum – hvernig efnismarkaðssetning getur auðveldað þér viðskiptin ;)



Í síðustu viku sýndi ég upptöku af fyrirlestri sem ég var með hjá Nýsköpunarhádegi Klak Innovit um efnismarkaðssetningu. Eitt af því sem ég minntist á þar var hvernig efnismarkaðssetning getur gert sambandið við viðskiptavininn mun betra, með því að fræða hann…

Flest okkar kannast við erfiða viðskiptavini, hvort sem það er að selja þeim til að byrja með, eða að vinna með þeim. Það eru ýmsar ástæður fyrir því (sumir eru bara svona ;) en í mjög mörgum tilfellum er hægt að minnka erfiðleikastigið með efnismarkaðssetningu. Með því að fjalla um hluti í kringum það sem þú gerir og uppfræða viðskiptavininn geturðu verið búinn að fjarlægja mikið af vegatálmunum og jafnvel opna dyrnar að því að selja þeim hluti sem annars væri erfitt að selja þeim.
Það er sennilega best að sýna þetta með dæmum:
Með því að fjalla um hvernig góður undirbúningur getur leitt til betri vefsmíði og þess að verkinu lýkur fyrr og innan fjárhagsáætlunar getur vefstofa hvatt viðskiptavini sína til að þess að koma betur undirbúnir að borðinu. Hún getur m.a.s. verið búin að fræða viðskiptavininn um það í hverju sá undirbúningur felst.
Sama vefstofan getur líka verið búin að fjalla um mikilvægi leitarvélabestunar og efnismarkaðssetningar, og þannig undirbúið jarðveginn svo að auðveldara verður að sannfæra viðskiptavininn um að hann þurfi að nota þessi tól og jafnvel selja viðskiptavininum þjónustu í kringum það.
Snyrtistofa getur fjallað um hvernig hinar ýmsu meðferðir fara fram og kosti þeirra. Ef að ég er t.d. búin að lesa um hvað ég græði á því að koma reglulega í andlitsbað, í stað þess að koma bara af og til, þá er ég líklegri til að koma reglulega en ella.
Einkaþjálfari getur fjallað um kosti þess að æfa á þennan hátt frekar en hinn þannig að þegar viðskiptavinurinn kemur í þjálfun þá skilur hann af hverju verið er að velja þær æfingar sem valdar eru. Þá er viðskiptavinurinn ánægður og þjálfarinn þarf ekki að eyða tíma í að útskýra af hverju hlutirnir eru gerðir svona en ekki hinsegin.
Hönnuður eða listamaður getur sagt frá pælingunum að baki verkunum, af hverju þessi og hin efni eru valin, hvernig þau eru unnin og þannig vakið áhuga og sýnt fram á gæði og virði þess sem verið er að selja. Að ekki sé minnst á að leyfa fólki að kynnast sér, sem myndar mun sterkari og skemmmtilegri tengingu fyrir viðskiptavininn.
Sjálf finn ég að ef að einhver hefur samband við mig eftir að hafa verið á póstlistanum mínum í einhvern tíma, þá er allt allt annað að tala við og vinna með viðkomandi heldur en t.d. þegar einhverjum hefur verið vísað á mig sem veit í rauninni ekkert um markaðsmál og hefur ekki fylgt mér áður. Þá veit sá hinn sami ekkert hvernig ég vinn og í markaðsmálunum er það oft svo að þegar fólk hefur ekki þekkingu á þeim, þá heldur það að hægt sé að smella fingrum og láta hluti gerast án nokkurrar fyrirhafnar – sem þú veist, af því þú lest pistlana mína, að er ekki alveg málið. Hinsvegar er hægt að gera hluti án mikils fjármagn og ná meiri árangri með því að vita hvað maður gerir, ó já, en þú uppskerð eins og þú sáir. Markaðsmálin eru nebblega ansi misskilin, skal ég segja þér :)
Hvað myndir þú vilja að viðskiptavinir þínir vissu um það sem að þér snýr? Hvað myndi hjálpa þér að eiga við erfiða viðskiptavini? Hvað myndi hjálpa þér að selja vöruna þína eða þjónustu? Hvernig geturðu notað það í efnismarkaðssetningu?
Segðu frá áskorunum þínum í ummælunum og kannski get ég eitthvað hjálpað ;)
 
Með því að þekkja markhópinn þinn almennilega geturðu betur skilið hvað þú þarft að segja og gera til að fá hann í viðskipti. Þess vegna er markhópagreining svona mikilvægur hluti af MáM þjálfuninni.

Written by Thoranna · Categorized: íslenskt · Tagged: efnismarkaðssetning, góðir viðskiptavinir, markhópagreining, markhópur, slæmir viðskiptavinir

Pissar þú í skóinn?

Ég er alsæl að bjóða velkominn gestabloggara á MáM bloggið. Þetta hefur staðið til lengi, en það er jú staðreynd að duglegt fólk sem hefur eitthvað að segja hefur líka mikið að gera og því hefur tekið sinn tíma að koma þessu af stað. Vonandi verður þetta bara fyrsti af mörgum skemmtilegum, áhugaverðum og gagnlegum gestabloggum.

Í dag bloggar hún Halla Kolbeinsdóttir, viðskiptastjóri hjá Hugsmiðjunni, en við Halla kynntumst haustið 2012 þegar ég vann með Hugsmiðjunni í markaðsstefnunni þeirra. Síðan þá hafa þau bara verið að rokka sífellt feitar og feitar (bókstaflega – það er fullt af tónlistarmönnum þarna ha ha ha!) og nú nýlega var bloggið þeirra tilnefnt til SVEF verðlaunannna sem besti vefmiðillinn – og það í hópi stórra og landsþekktra vefmiðla! (Ég vil nú eiga pínku oggu ponsu pons í að blogginu skuli hafa verið ýtt úr vör svo ég er extra glöð fyrir þeirra hönd ;)

Jæja, nóg blaður frá mér – et voilà – gestablogg frá Höllu í Hugsmiðjunni: 

Góður grunnur er gulls ígildi

Í okkar daglega starfi hjá Hugsmiðjunni vinnum við mikið með viðskiptavinum sem koma til okkar í leit að nýjum, betri vef.

Sumir koma til okkar því þau vita að hér eru afburða forritarar, aðrir hafa séð hönnun frá okkur sem heillar og aðrir þekkja okkur vegna vinnubragða í viðmótsforritun. Það sem færri sjá er ósýnilega undirbúningsvinnan. Grunnurinn að góðum vef.

Vinnan sparar tímann

Fyrsta fasa í vefgerð köllum við oft greiningu og hönnun. Til eru mörg afbrigði af fyrstu skrefunum: Markhópagreining, markaðsgreining, vefstefnumótun, ímynd fyrirtækisins og tónn, samkeppnisgreining o.fl. Misjafnt er eftir verkefnum hvort þurfi að ráðast í allar greiningar, en best er, ef vel á að fara, að taka skurk á nokkrum þeirra. Greining getur munað því hvort vefur er hannaður fyrir markhóp fyrirtækisins (í stað starfsmanna fyrirtækisins) og hvort auðvelt sé að nota hann eða ekki.

Við bjóðum sjálf upp á marga þætti hjá okkur, en þegar kemur að því að gera fínt hjá sjálfum sér getur hjálpað að leita utan sinna eigin veggja og fá óháða leiðsögn og ráðgjöf.

Árið 2012 vorum við hjá Hugsmiðjunni að vinna að því að koma okkar eigin vef í loftið. Það gekk svona upp og ofan þannig að við tókum á það ráð að sækja leiðsögn að utan. Við höfðum samband við MáM og eftir nokkra fundi með Þórönnu fór leiðin hjá okkur að skýrast.

Það að sjá skýrt hverjir okkar markhópar eru, hverjir samkeppnisaðilarnir eru og hvað skilur okkur frá þeim er dýrmætt. Saman unnum við að því að koma auga á hvert núverandi brand okkar var og skerpa á því sem var að virka og setja upp plan fyrir framtíðina.

Pissum í skóinn?

Ég fæ á tilfinninguna að sumum finnst þessi vinna vera óþörf. Að fólk hugsi oft „við vitum hver við erum og við hvern við erum að tala: alla – stærra net hlýtur að þýða fleiri viðskiptavinir?“ “Sleppum frekar þessari ‘aukavinnu’ og förum beint í að vinna herferðina”. “Pissum í skóinn” heyri ég bara – skammgóður vermir.

Það er sjaldan sem fleiri en einn til tveir starfsmenn eru með sýnina á hreinu. Verðmætið í að vef-, markaðs-, hönnunar- og framkvæmdastjóri séu öll á sömu blaðsíðu með sýnina er ómetanlegt. Skyndilega er hægt að tala saman út frá sömu forsendum og setja saman aðgerðaplan fyrir markaðsstarf, stefnu og hönnun. Þegar vegakortið liggur fyrir er svo mikið auðveldara að klára hönnun því þá liggja markmiðin í augum uppi. Búið er að taka út mikið af ágiskunum og „tilfinningunni“ sem mismunandi aðilar eru með. Í stað þess að meta vef út frá því sem einhverjum finnst þá er hægt að spyrja: Uppfyllir þessi hönnun markmið okkar sem fyrirtækis? Er þetta það sem markhópur X er að leita að?

Munurinn í heimsóknartölum á vefinn milli ára staðfestir þetta. Árið 2013 fengum við 140% fleiri heimsóknir en 2012. Við höfum stuðst við vinnuskjölin og markaðskerfið frá MáM sem hefur leyft okkur að taka hlutina skrefinu lengra. Það er ótrúlegt hvað markviss undirbúningur skilar miklu.

Hugsmiðjan fór í gegnum MáM þjálfunarferlið og nýtir efnismarkaðssetningu í sínu markaðsstarfi :)

Written by Thoranna · Categorized: íslenskt · Tagged: blogg, Branding, framtíðarsýn, markhópagreining, markhópur, samkeppnisgreining, stefna, sýn, vefsíðan

Þýðir eitthvað að vera að markaðssetja á Facebook lengur?

þýðir eitthvað að vera að markaðssetja á Facebook lengur? - thoranna.is

Ertu að markaðssetja á Facebook?

Ef svo er, þá hefurðu væntanlega tekið eftir því þegar þú horfir á tölurnar fyrir Facebook síðuna þína að póstarnir þínir eru að ná til sífellt færra fólks – eða hvað? Það hafa margir verið að taka eftir þessu núna í nokkurn tíma – og nei, það er ekki bara það að fólk hafi verið minna á Facebook í kringum hátíðarnar og sjái þess vegna minna af því sem þú póstar.

Facebook hefur sagt það bara hreint út að nú sé ekki lengur hægt að treysta á að ná til fólks frítt í gegnum Facebook síður og mæla með því að nota keyptar auglýsingar. Þetta ætti sosum ekki að koma neinum á óvart. A: Þeir eru jú í bissness og tekjurnar þeirra koma af auglýsingum og B: Það flæðir ógnarmagn af póstum á Facebook og þeir verða einhvern veginn að velja það sem þeir birta hjá fólki þannig að fólk sé að fá það sem það vill sjá – því annars yrði það fljótt að fara bara (og þá væri Facebook ansi gagnslaust markaðstól). Fólk sér ekki allt sem þeir sem það tengist á Facebook pósta – Facebook velur úr.

Þú getur séð nokkrar fleiri greinar um þessar Facebook breytingar hér fyrir neðan ef þú vilt kafa ;)

Hvað skal þá til bragðs taka? Eigum við að hætta bara að nota Facebook eða er eitthvað sem við getum gert til að vinna með þetta? – já, það getum við. Hér eru 7 atriði sem eru nauðsynleg til að fá sem mest út úr Facebook í dag:

Númer 1
Póstaðu efni sem fólk hefur áhuga á og gerir eitthvað með. Ef ég líka við, skrifa ummæli við eða deili pósti frá einhverjum (hvort sem það er manneskja eða síða) þá sýnir Facebook mér meira frá viðkomandi. Það þýðir að við þurfum að vera með efni sem fólk virkilega hefur áhuga á til að auka árangurinn af því sem við gerum frítt á síðunni okkar. Og hvernig getum við tryggt það? jú…

Númer 2
Við verðum að vita við hverja við viljum vera að tala. Þetta þýðir að við þurfum að vera mjög skýr á því hverjir markhóparnir okkar eru og við verðum að þekkja þá og skilja eins vel og mögulegt er svo við getum höfðað til þeirra. Facebook er samfélagsmiðill – hver vill vera í félagsskap með einhverjum sem leggur sig ekki fram um að þekkja mann eða skilja og er þess vegna bara að blaðra um eitthvað sem maður hefur engan áhuga á? – neitt frekar en maður talar við gæjann í partýinu sem talar bara um sig og hefur engan áhuga á þér ;)   – þetta er ein af ástæðunum fyrir því að markhópagreining er svona stór hluti af MáM þjálfuninni.
Númer 3
Þú þarft að vera áhugaverð(ur). Alveg eins og Michelin matreiðslumeistarar gera ekki bara góðan mat, heldur kunna líka að bera hann fram þannig að hann veki athygli, þá þarftu að huga að því hvernig þú birtist fólki. Hafðu karakter, vertu afgerandi, og hafðu samræmi. Það er þetta með brandið sem ég hef svo oft minnst á og þú getur fundið ýmislegt meira um hér á blogginu og brandið er líka mikilvægasti hluti MáM þjálfunarinnar ;)
Númer 4
Þú þarft að taka efnistökin þín, gerð efnisins og dreifinguna föstum tökum. Það er að ýmsu að huga. Þarna kemur inn eitt og annað er varðar efnismarkaðssetningu (e. content marketing). Ef þú græjar þetta ekki, þá verður mjög erfitt að vera alltaf að senda frá sér efni sem höfðar til hópsins og verkefnið verður óyfirstíganlegt fjall. Ég hef líka talað töluvert um efnismarkaðssetningu hér á blogginu.
Númer 5
Lærðu að nota Facebook auglýsingar almennilega til að styðja við það sem þú ert að gera á Facebook og annars staðar. Það er ótrúlegustu hluti hægt að gera með Facebook auglýsingum. Þú getur miðað auglýsingar á þá sem hafa lækað ákveðnar síður, þú getur keyrt inn netfangalista og auglýst bara á þá sem eru með þau netföng á Facebook, þú getur fundið “lookalike audiences” – þ.e. auglýst bara á fólk sem líkist hópnum sem er þegar á síðunni þinni o.fl. o.fl.
Númer 6
Það er ódýrara að auglýsa á þá sem eru búnir að læka síðuna þína heldur en aðra, svo að það er ennþá gott að hafa fullt af fylgjendum á síðunni – en það er tilgangslaust ef það eru ekki réttu fylgjendurnir (sjá nr. 2!). Allskonar like leikir, like-deila-kvitta og þá geturðu unnið iPad eða eitthvað bladí bla eru ekki bara leiðigjarnir og pirrandi, heldur draga að sér allskonar fólk sem hefur í rauninni engan áhuga á því sem þú hefur að bjóða og eru ekkert að fara að leiða til viðskipta – gerðu það fyrir mig – ekki gera það ;)
Númer 7
Náðu fólkinu þínu lengra. Ekki nota bara Facebook til að vera með þeim á Facebook. Notaðu Facebook til að ná til þeirra og hefja sambandið. Fáðu þau svo til að vera memm á póstlistanum þínum þar sem þú getur verið reglulega í sambandi án þess að borga fyrir hvert skipti. Fólk les kannski ekki alla tölvupóstana sem þú sendir, en alltaf einhverja, og eru minnt á þig í hvert skipti sem þú ert í pósthólfinu þeirra. Athugaðu þó að atriði 1.-4. hér fyrir ofan gilda alveg jafnt fyrir póstlistann þinn og Facebook. Athugaðu líka að póstlistamarkaðssetning hefur ýmsar reglur sem þú verður að kynna þér áður en haldið er af stað og það er ákveðin list að gera hana vel – fólk getur jú alltaf afskráð sig.
Hvað segir þú? Hefurðu fundið fyrir þessum breytingum hjá Facebook og hvað ætlar þú að gera í málunum?
Ef þú vilt lesa meira um þetta:

Upprunalegi Facebook pósturinn: https://www.facebook.com/business/news/What-Increased-Content-Sharing-Means-for-Businesses
http://allfacebook.com/pages-organic-reach-decline-news-feed-algorithm_b127398
http://adage.com/article/digital/facebook-admits-organic-reach-brand-posts-dipping/245530/
http://marketingland.com/facebook-concedes-that-organic-page-reach-is-dwindling-ads-are-best-way-to-been-seen-67302
http://www.ignitesocialmedia.com/facebook-marketing/facebook-brand-pages-suffer-44-decline-reach-since-december-1/
http://www.insidefacebook.com/2013/12/23/studies-show-more-than-40-percent-decreased-organic-reach-on-facebook/
http://www.insidefacebook.com/2013/12/05/facebook-pages-may-see-organic-reach-decline/
http://allfacebook.com/deanna-sandmann-sim-partners-reach_b128335
http://www.jonloomer.com/2013/12/11/facebook-page-post-reach/

Written by Thoranna · Categorized: íslenskt · Tagged: auglýsingar, Brand, Branding, Content, efnismarkaðssetning, Facebook, markhópagreining, markhópur, póstlistinn, samfélagsmiðlarnir

Hvar er þetta fólk eiginlega?!

Átti frábæran laugardag að mentorast á Startup Weekend Reykjavík. Mæli eindregið með því að allir kynni sér hana og séu með þegar tækifæri gefst til. Hún er almennt haldin í Reykjavík á haustin, en þú getur fundið Startup Weekend  víðsvegar um landið á ýmsum tímum – og víðsvegar um heiminn.

Þarna hitti ég fullt af flottu fólki að vinna að fullt af flottum verkefnum og ég er mjög spennt að fylgjast með framhaldinu. Ein af þeim sem ég talað við þarna var nýbúin í námi og var að hefja fyrstu skref í ráðgjafastarfsemi í sínu fagi. Hún hafði samviskusamlega lesið pistlana mína og gerði sér vel grein fyrir því að hún þyrfti að skilgreina markhópinn sinn. Vandamálið var bara að hún hafði ekki hugmynd um hver draumaviðskiptavinurinn væri, eða hvernig henni líkaði best að vinna með viðskiptavinunum sínum, vegna þess að hún var algjörlega að byrja og hafði ekkert unnið við þetta áður með þessum hætti. Svo mér datt í hug að fleiri kynnu kannski að njóta góðs af því sem við ræddum á laugardaginn :)

Ég var að mörgu leyti í sömu stöðu þegar ég byrjaði. Ég vissi að ég vildi vinna með aðilum sem ekki hefðu sérfræðiþekkingu í markaðsfræðunum en þyrftu að bæta markaðsstarfið og ég hafði mínar hugmyndir um hvernig best væri að gera það. Svo ég byrjaði að vinna maður á mann með viðskiptavinum. Og það gekk bara vel. Ég reyndar ákvað svo að breyta hvernig ég vann, en ég hef fjallað um það í öðrum pistli og á eflaust eftir að tala um það aftur. Hitt sem gerðist var að ég fór að átta mig á hverskonar viðskiptavinum ég vildi vinna með. Það voru sem betur fer engir þeirra slæmir, alls ekki, en ég naut þess meira að vinna með sumum en öðrum og það var augljóst að sumir fengu meira út úr því að vinna með mér en aðrir.

Mín ráð til þessarar flottu stelpu sem ég hitti á Startup Weekend voru einföld. Byrjaðu bara! Hentu þér út í djúpu laugina. Jú, markaðssetningin verður ekki mjög markviss til að byrja með, því þú talar ansi vítt við alla sem mögulega vilja heyra, en þannig byrjarðu að fá fólk til þín. Talaðu frá hjartanu og því sem þér finnst, hvort sem það er á Facebook, í bloggi, á póstlistanum eða annars staðar og þá muntu laða að þér rétta fólkið fyrir þig.

Bjóddu vinum og vandamönnum fría ráðgjöf. Biddu þá að vera ekkert að segja frá því að þau séu ekki að borga, en vera endilega dugleg að segja frá ef þeim líkar vel og eru tilbúin að mæla með þér. Og vertu meðvituð. Vertu meðvituð um hvað þú fílar, hvað þú fílar ekki. Af hverju er það? Hvað á þetta fólk sameiginlegt sem þú fílar að vinna með? Hvað á þetta fólk sameiginlegt sem þú fílar ekki eins vel að vinna með.

Það gerir ekkert gagn að sitja og velta hlutunum fyrir sér of lengi. Jú, ég mun alltaf vera talsmaður þess að plana, en svo verðurðu líka bara að gera. Svo staldrarðu aftur við, lærir af reynslunni, og planar næstu skref byggt á þeirri reynslu. Það er engin önnur leið til að vita þetta allt saman. Það kemur ekki til með að koma til þín í draumi og það er enginn annar þarna úti sem getur sagt þér það.

Farðu út og talaðu við fólk. Fáðu þau til að prófa vöruna þína eða þjónustu, gefa þér endurgjöf og spekúleraðu í hvað virkar fyrir þig og hvað ekki. Þú átt stöðugt eftir að vera að slípa. Það eru núna að verða 2 ½ ár síðan ég byrjaði að vinna sjálfstætt og mér finnst ég vera hinum megin á hnettinum miðað við hvar ég byrjaði – og ég er enn að læra, tjúna til, slípa, græja og gera. Og veistu hvað, mikið er ég fegin – annars yrði þetta barasta leiðinilegt!

Gangi þér vel að finna fólkið þitt! :)

Written by Thoranna · Categorized: íslenskt · Tagged: markhópagreining, markhópur, vænlegur markhópur

Bladí bladí bla bæt, blah, RAM, bladí bla MHz bla…

Skildirðu þetta ekki alveg? Hvað meinarðu?! En það er fullt af fólki sem heldur að fullt af fólki skilji þetta og skilur ekkert af hverju fullt af fólk er ekki æst í að kaupa af þeim! :)

Það hafa komið að máli við mig nokkrir aðilar sem reka tölvuþjónustur. Þetta eru minni aðilar á markaði, bjóða upp á ýmsa þjónustu í kringum tölvurnar og selja oft líka tölvubúnað. Flestir þessir aðilar eru minnst að selja til tölvusérfræðinga. Helstu viðskiptavinirnir eru einstaklingar og lítil og meðalstór fyrirtæki, þar sem ekki er upplýsingatækni-sérfræðingur innanborðs, eða ef það er einhver sem sér sérstaklega um þau mál þá er það oft aðili sem hefur nokkuð almenna þekkingu og getur haft yfirsýn yfir hlutina, frekar en að vera sérfræðingur á einhverju sviði.

Málið með þessi fyrirtæki er að þau eru eiginlega barasta öll eins – ja, a.m.k. þau sem ég hef skoðað. Það sker sig ekkert þeirra almennilega úr og ekkert þeirra talar á mannamáli um hvað þau geta gert fyrir viðskiptavini sína heldur týna flestir sér í græjutali og fagmáli. Fólki er þessvegna svo sem alveg sama hvar það verslar. Það kaupir þar sem það fær besta verðið – verð er því það helsta sem keppt er á – og ef fólk kaupir vegna þess að þjónustan er góð, þá er það oftar vegna þess að það var heppið og lenti á honum Sigga eða Bjössa eða einhverjum sem er bara náttúrulega þjónustulundaður, ekki af því að fyrirtækið sem slíkt hafi tekið þjónustumálin sín föstum tökum.

Það eru mikil tækifæri á þessum markaði til að skera sig úr. Tala við fólk á mannamáli, en ekki í
bætum og Hz og RAM og hvað þetta heitir allt. Hvaða vanda þarf að leysa? Hvaða þörf þarf að mæta? Og að láta skína í gegn að það eru engar heimskulegar spurningar, bara heimskuleg svör. Efnismarkaðssetning (sem ég hef talað um áður hér í blogginu) er tilvalin fyrir tölvufyrirtæki. Vertu sérfræðingurinn sem veit allt um þessi mál  en segir það á mannamáli, veitir fólki þær upplýsingar sem það þarf. Þannig myndu þau byggja upp samband, traust, sérfræðiorðspor og orðspor fyrir þjónustulund.

Já og byggðu upp áhugaverðan brand persónuleika sem fólki líkar við. Þorðu að vera skemmtilegur, litríkur, hjálplegur, þægilegur, glaðlegur. Veldu aðra liti en svartan og grænan  með Matrix style myndefni, eða rauðan og gráan með allt of miklu dóti og tilboðsstjörnum um allan vef. Þróaðu aðgreinandi og áhugaverðan tón í því hvernig fyrirtækið talar. Ekki vera alveg eins og allir hinir. OK, ég veit, augljóst dæmi, en af hverju heldur þú að Apple hafi skotið öðrum fyrirtækjum á sínum markaði ref fyrir rass? Ekki með því að tala í bætum, Hz og RAM.  iPod: “A 1000 songs in your pocket” – það er það sem skiptir máli! (Það er reyndar svolítið skondið að það að taka Apple sem dæmi er algjör klisja, en samt er bransinn ekki búinn að fatta þetta með hundinn! :)

Ég hef ekki enn unnið fyrir neitt af þeim tölvufyrirtækjum sem hafa komið að máli við mig. Af hverju? Vegna þess að hingað til hafa þau flest viljað koma og fá að vita hvað aðgerðir þau ættu að fara í: “eigum við að kaupa Facebook auglýsingar, Google AdWords, eigum við að auglýsa þarna eða á hinum staðnum…” og ég einfaldlega vinn ekki þannig. Það er bara einfaldlega bull að byrja á þeim endanum. Þú þarft að þekkja markhópinn, samkeppnina, vita hver þú ætlar að vera, hvernig þú ætlar að vera öðruvísi en hinir og hvernig þú vilt að fólk sjái þig, áður en þú getur ákveðið hvaða markaðsaðgerðir eru réttar fyrir þig og til þess að þær virki þegar þú ferð að nota þær. Ef þú þekkir ekki markhópinn hvernig ætlarðu þá að tala til hans á Facebook? Þú endar í tilboðum og læk-deila-kvitt leikjum og álíka vitleysu, því að þú ert ekki að veita fólki neitt annað sem er neins virði því þú veist ekki hvað skiptir þau máli. Ef þú hefur enga sýn á hvernig þú vilt að fólk sjái þig, hvert þú vilt að brandið þitt sé, þá verður efnið þitt sundurleitt, ósamræmt, ómarkvisst og áhrifalaust, því að þú veist ekki hver þú vilt vera og hvernig fólk sér þig, fólk sér engan samræmdan persónuleika og hefur þess vegna enga leið til að líka við þig, hvað þá að mynda við þig samband.

Ég viðurkenni það algjörlega, mig dauðlangar að vinna fyrir tölvufyrirtæki sem er tilbúið að rífa sig út úr kassanum og gera hlutina almennilega. Það væri hrikalega spennandi verkefni. “Come on, íslenska Apple!” ha ha ha … Ég veit að það er hægt að skilja samkeppnisaðilana eftir í rykinu. En það þýðir hugrekki, dugnað, þolinmæði, metnað og að vera a.m.k. pínku oggulítið klikkuð – ég auglýsi hér með eftir svoleiðis tölvufyrirtæki til að vinna með! :)

Written by Thoranna · Categorized: íslenskt · Tagged: ástríða, Brand, Branding, Content, efnismarkaðssetning, hugrekki, líka við, markaðssamskipti, markhópur, þörf

  • « Previous Page
  • 1
  • 2
  • 3
  • 4
  • Next Page »
  • Facebook
  • Instagram
  • LinkedIn
  • Twitter

© 2023 Thoranna.is · Rainmaker Platform