Við höfum öll ábyggilega einhvern tímann uppgötvað það að vita eitthvað, svona með heilanum, en að vakna svo einn daginn upp og fatta það. Skilja það almennilega. Eins og sagt er á ensku, “take it to heart”. Svoleiðis nokkuð var ég að upplifa síðustu daga. Þrátt fyrir að vera alltaf að hamra á því við viðskiptavini mína og við þig, kæri lesandi, að hafa hugrekki til að vera öðruvísi og skera þig úr, og hvetja þig til að skipta máli og hafa þýðingu fyrir fólk, þá áttaði ég mig á því að ég er búin að vera í felum. Ég er búin að fela hluta af sjálfri mér eins og það sé hið versta leyndarmál…
Ekki vera hrædd(ur) við að þrengja…
Þetta er klassískt í markaðsfræðunum og ég hef talað um þetta margoft áður. Finndu markhópinn þinn, þann sem er vænlegastur fyrir þig, og markaðssettu á hann. Ekki reyna að vera allt fyrir alla. Finndu drauma viðskiptavininn og finndu svo fleiri svoleiðis.
- hún/hann þarf að hafa metnað til að vilja geta betur, betur og enn betur
- hann/hún þarf að vilja byggja upp framúrskarandi fyrirtæki – ekki bara eitthvað sem gengur
- hún/hann þarf að vilja breyta heiminum með fyrirtækinu sínu – ekki endilega öllum, en a.m.k. sínu litla horni af honum
- hann/hún þarf að vilja byggja upp fyrirtæki sem er einstakt, öðruvísi og áhugavert
- hún/hann þarf að vera tílbúin(n) að leggja á sig þá vinnu sem til þarf
- hann/hún þarf að vera óhrædd(ur) – ja, tilbúinn að taka á hræðslunni
Ekki byggja á sandi
Ef þú veist ekki til hverra þú ætlar að höfða og ef þú þekkir ekki áhorfendur eða lesendur, hvernig ætlarðu þá að gera efni sem að þeir hafa áhuga á? Hvernig veistu hvar best er að deila efninu með þeim? Hvernig veistu hverskonar efni þau eru líklegust til að vilja sjá; texta, vídeó, myndir o.s.frv.
Þú vilt heldur ekki bara tala um það sem þú gerir, þú vilt hafa svigrúm til að fjalla um ýmislegt í kringum það sem höfðar til markhópsins – annars ertu bara eins og leiðinlegi gæinn í partýinu sem talar bara um sig og sín áhugamál. Þess vegna er algjörlega nauðsynlegt að vita hver markhópurinn eða markhóparnir eru og að þekkja þá og skilja mjög vel.
Já og ef þú ert með marga markhópa, hvaða efni höfðar til hvers, hvernig er best að koma því til skila þannig að það nýtist sem best, en líka að efni til eins markhóps hafi ekki neikvæð áhrif á annan markhóp ef hann sér það. Þetta þarf allt að vera á hreinu til að ná árangri með efnið þitt.
Að sama skapi verðurðu að vita hver þú vilt vera, hvaða hugsanir þú vilt vekja, hvaða tilfinningar þú vilt að vakni hjá fólki þegar það kemst í samband við þig í gegnum efnið þitt. Efnið þitt byggir brandið þitt á mjög sterkan hátt – en ef þú veist ekki hvernig brand þú vilt byggja upp þá getur efnið aldrei markvisst stuðlað að því að byggja það upp, og jafnvel gert meira illt en gott með því að gera ímyndina óljósa og fólk átti sig ekki á því hver þú ert og hvað þú gerir. Það er aldrei vænlegt til árangurs.
Þú þarft að þekkja og skilja markhópinn
Stundum þarftu að reka viðskiptavini
Öll viðskipti eru ekki góð viðskipti og það er mikilvægt að vera ekki að láta viðskiptavini sem ekki eru réttir fyrir þig taka frá þér tíma og orku. Fáðu að vita meira með því að horfa á þetta stutta vídeó.