This website or its third-party tools use cookies which are necessary to its functioning and required to improve your experience. By clicking the consent button, you agree to allow the site to use, collect and/or store cookies.
Please click the consent button to view this website.
I accept
Deny cookies Go Back

Thoranna.is

Marketing Consultation and Planning on the Digital Spectrum

  • Heim
  • Blogg
  • Ráðgjöf
  • Samstarf
  • Fyrirlestrar & fræðsla
  • Um
  • Samband
  • EN
You are here: Home / Archives for draumaviðskiptavinur

Þorirðu að vera bleik(ur)?!

þorirðu að vera bleik(ur)? - thoranna.is

Hefurðu séð nýju bókina mína, Marketing Untangled: The Small Business & Entrepreneur’s Map Through the Marketing Jungle? Því verður ekki neitað að hún er bleik :)

Ég var að spjalla við vin minn á Facebook nýlega. Í stað þess að endursegja samtalið, þá ætla ég barasta að pósta því hér:

Vinur minn: “Líst svakalega vel á bókina, kápan alveg SOLID og æsir upp forvitnina í manni. Bara eitt sem kom mér á óvart … og ég er ennþá að reyna að ná utan um…”

Ég:  “Aha – hvað?”

Vinur minn:  “Kápan er svo rosalega BLEIK á litinn … var það planið? :) “

Ég: “Óóóóóóóóóóóóóóó já :) “

Vinur minn:  “Ó … Hélt ‘etta væri kannski mistök í prentsmiðjunni… djóóóóóók :) “

Ég:  “Eins og ég – big, bold and unapologetic ;)  “

Vinur minn:  “Samfella í öllum skilaboðum frá þér. Þóranna … bleika brandið!”

Ég: “Fer ekki framhjá neinum og fælir frá þá sem myndu aldrei fíla mig hvort eð er og ég nenni ekki að vinna með ;)  “

Vinur minn: “Ha ha ha … gott að sía það lið út strax á fyrsta degi!”

Ég: “Yep – eitt það dýrmætasta sem ég hef lært í business er að þekkja þá sem eru ekki “good business” og fæla þá strax frá. Það fer svo mikill tími og orka í að tala við þau. “I don’t mean to be evil or anything” :)   Nei, en grínlaust, það fer allt of mikill tími í fólk sem ekki er rétt fyrir mann og með því að koma bara með hlutina út strax þá sparar maður öllum tíma og hausverk :)  “

Vinur minn: “Ég er alveg sammála þér.”

Ég:
“Ehaggi … þetta er tricky og eitthvað sem er bara hægt að læra – maður getur ekkert séð þetta nógu vel fyrir.”

Vinur minn: “Ég er að læra að þekkja merkin á svona “tirekickers”… sumir gefa frá sér svona “ætli ég þurfi ekki að skoða þessi mál eitthvað” vibe… það vekur ekki upp tiltrú að viðkomandi setji sig í gírinn og komi einhverju markvissu í verk.”

Ég: “Ég þoli einmitt ekki “tire kickers”.”

Þó að margir séu ekki tilbúnir að segja það upphátt, þá eru margir sem skilja nákvæmlega hvað við eigum við í þessu samtali. Ég er mjög oft spurð af hverju ég valdi þennan sterka bleika lit, og hvort ég hafi ekki áhyggjur af því að það fæli fólk frá – og jafnvel hvort ég hafi ekki áhyggjur af því að hann verði til þess að karlmenn vilji ekki eiga viðskipti við mig. Mitt svar er einfalt: Ef bleiki liturinn er vandamál fyrir fólk þá kem ég til með að vera vandamál fyrir fólk. Því fólki á ég eftir að finnast ég of “in your face”, of orkumikil og of lífleg. Ástæðan fyrir því að ég valdi þennan lit er sú að hann er algjörlega táknrænn fyrir mig og gefur frá sér réttu merkin til fólks þannig að það fær strax á tilfinninguna hvernig ég er.

Hver ert þú og hvernig kemur þú því til skila til umheimsins þannig að þú laðir að þér fólkið sem þú vilt eiga viðskipti við og látir hina vita bara strax að þið passið ekki saman – og sparar þér og þeim þannig tíma? :)

Written by Thoranna · Categorized: íslenskt · Tagged: Branding, draumaviðskiptavinur, markhópur

Það er þitt að koma hlutunum frá þér



Ef ég fengi hundraðkall fyrir hvert skipti sem ég heyri fólk kvarta út af viðskiptavini og að hann bara skilji ekki þetta eða skilji ekki hitt, þá gæti ég sennilega borðað a.m.k. eina fría máltíð á viku (þó ekki væri nema á Bæjarins bestu).

Nýlega fann ég þessa tilvitnun: “Ef þú hefur sagt barni hlutinn þúsund sinnum og hann skilur hann ekki ennþá, þá er það ekki barnið sem getur ekki lært.” (Walter Barbee)
Þessi tilvitnun gæti alveg eins verið “Ef þú hefur sagt viðskiptavininum hlutinn þúsund sinnum og hann skilur hann ekki ennþá, þá er það ekki viðskiptavinurinn sem getur ekki lært.”
Það er ekki á ábyrgð viðskiptavinarins að skilja þig. Það er á þína ábyrgð að gera þig skiljanlegan fyrir viðskiptavininum. Skynjun er raunveruleiki hvers manns. Ég skynja heiminn á einn hátt, og það er minn raunveruleiki og þú skynjar hann á þinn – og það er þinn raunveruleiki. Það er ekki hægt að segja að einn raunveruleiki sé réttur og annar rangur. Það er bara mismunandi skynjun. Mín skynjun er minn raunveruleiki og það sem ég byggi mínar ákvarðanir á – þar á meðal ákvörðunina um hvort ég versla við þig eða ekki.
Hvað á ég þá til bragðs að taka ef að ég veit að eitthvað er á þennan veg eða hinn og viðskiptavinurinn bara einfaldlega skilur það ekki og kaupir þess vegna ekki af mér?
Þú verður að skoða hvernig þú ert að koma skilaboðunum til viðskiptavinarins. Bæði hvar, en það sem er yfirleitt ástæðan fyrir því að hlutirnir komast ekki til skila, er að við erum ekki búin að finna hvernig. Hvernig getum við best sett hlutina fram þannig að þeir hitti í mark hjá viðskiptavininum?
Ef þeir skilja þig, en er samt bara sama, þá skiptir það sem þú ert að segja þá ekki máli. Ávinningurinn sem þú ert að leggja áherslu á fyrir þína vöru eða þjónustu. Lausnin þín veitir ekki þann ávinning sem viðkomandi er að leita eftir. Og þá skiptir engu máli hversu vel þú kemur hlutunum til skila. Ef að ég vil fá máltíð fljótt, þá vil ég hana fljótt. Ef þú segir mér að hún sé skv. Músímúsímúsí kúrnum og taki þess vegna lengri tíma, þá er mér bara alveg sama og fer eitthvert annað þar sem ég get fengið hana fljótt. Vertu viss um að það sem skiptir þig máli skipti viðskiptavininn máli.
Svo er náttúrulega alltaf spurning hvort þetta er yfir höfuð rétti viðskiptavinurinn fyrir þig og hvort þú átt nokkuð að vera að berja hausnum við steininn. Er þetta draumaviðskiptavinurinn eða eru þetta meiri vandræði en hitt? Kíktu hér ;) Og hér! – það gæti líka bara verið málið :)



Written by Thoranna · Categorized: íslenskt · Tagged: draumaviðskiptavinur, góðir viðskiptavinir, markaðssamskipti, miðlun, samskipti, slæmir viðskiptavinir, vænlegur markhópur

Vertu páfugl!



Við höfum öll ábyggilega einhvern tímann uppgötvað það að vita eitthvað, svona með heilanum, en að vakna svo einn daginn upp og fatta það. Skilja það almennilega. Eins og sagt er á ensku, “take it to heart”. Svoleiðis nokkuð var ég að upplifa síðustu daga.  Þrátt fyrir að vera alltaf að hamra á því við viðskiptavini mína og við þig, kæri lesandi, að hafa hugrekki til að vera öðruvísi og skera þig úr, og hvetja þig til að skipta máli og hafa þýðingu fyrir fólk, þá áttaði ég mig á því að ég er búin að vera í felum. Ég er búin að fela hluta af sjálfri mér eins og það sé hið versta leyndarmál…

Við erum oft svo upptekin af því að veita viðskiptavininum það sem hann vill að við sýnum ekki okkar innra sjálf. Við hættum að vera manneskjur og byrjum að vera bara fyrirtæki. Andlitslaust, formlegt og fagmannlegt fyrirtæki. Okkur er sagt að við verðum að mæta þörfum viðskiptavinarins, og að viðskiptavinurinn hafi alltaf rétt fyrir sér, og að við þurfum að hlusta á viðskiptavininn og gefa honum það sem hann vill. Sem er allt satt og rétt en… um leið og það er á kostnað þess að við séum sönn sjálfum okkur, séum þær manneskjur og það fyrirtæki sem við raunverulega erum, og erum farin að reyna að vera eitthvað annað, þá er það of dýru verði keypt. Og fagmennska þýðir ekki að hætta að vera manneskja.
Það er nefnilega voðalega erfitt að laða fólk að sér þegar maður er að reyna að vera eitthvað annað en maður er. Hinsvegar, um leið og maður er trúr sjálfum sér, þá laðar maður að sér rétta fólkið fyrir sig – manstu, rétta fólkið, þennan þrönga hóp sem ég talaði um í síðustu viku :)
Einn af mínum frábæru viðskiptavinum er Herdís Pála, markþjálfi og fyrirlesari. Hún vinnur með einstaklingum í því að verða það besta sem viðkomandi getur orðið. Þegar hún kom til mín og við unnum í því hvernig hún vildi að brandið hennar yrði, þá talaði hún mikið um bók sem heitir Páfugl í Mörgæsalandi. Bókin er “tileinkuð öllum þeim sem þrá að fljúga frjálst eins og fuglinn og sýna rétta eðli sitt…” og hafði mikil áhrif á þá ákvörðun Herdísar að fara út í það sem hún gerir í dag. Herdís er flott og sterk kona sem vinnur hörðum höndum við að hvetja aðra áfram og byggja upp fólk, en samt hikaði hún við að nota páfuglinn sem táknið sitt, hún hikaði við að breiða út fjaðrirnar sínar og vera sú sem hún er – það besta sem hún er. Hún hikaði við að nota sterka liti, hún hikaði við að láta vaða, hún hikaði við að vera páfugl.  Svo ég ýtti, og ég ýtti, og ég ýtti við henni … og í dag nýt ég þess að sjá hana breiða út fjaðrirnar og hjálpa öðrum að gera slíkt hið sama. (Þið getið fengið að vita meira um Herdísi á herdispala.is).
Af hverju er ég að tala um Herdísi Pálu – jú, af því að svo geri ég það sama – og svo mörg okkar. Það er erfitt að “practice what you preach” eins og maður segir. Það er erfitt að breiða út vængina.
Eftir að ég kláraði MBA námið mitt þar sem ég lagði áherslu á stategíska markaðsstjórnun, þá faldi ég lengstu lög hvað ég hafði lært og gert áður. Af hverju? Af því að ég hafði áhyggjur af því að það yrði ekki tekið mark á mér í viðskiptaheiminum.  Málið er nefnilega að ég er með háskólapróf í leiklist og söng (Musical Theater) og vann svo samhliða þeim störfum sem “executive assistant” (aðstoðarmaður forstjóra, stjórnarmanna og svoleiðis jakkalakka :)   … ég átti mjög erfitt með að standa fyrir mínu og segja, eins og er, að námið mitt og reynsla nýtist mér gríðarlega vel í því sem ég geri í dag og er sterkasti og verðmætasti aðgreiningarþátturinn minn. Ég er með menntunina í markaðsmálunum, ég er markaðsnörd þannig að ég er ennþá sífellt að læra – það er jú þannig að próflaus maður með ástríðu fyrir einhverju veit yfirleitt mun meira um það en maðurinn með 5 háskólagráðurnar sem hefur misst neistann fyrir því . (M.a.s. Google viðurkenndu nýlega að gráðurnar segja ekki allt og hafa breytt ráðningarstefnu sinni þannig að hún tekur mun minna tillit til námsafreka en áður – ekki að ég sé neitt að setja út á menntun, síður en svo!). Það sem ég hef síðan fram yfir aðra markaðsnörda eru hlutir sem ég fékk í leiklistinni og söngnum, hlutir eins og skapandi hugsun, að hugsa út fyrir kassann, hæfileiki til að koma fram og gefa af mér – enda fíla ég mig sjaldan betur en þegar ég fæ að halda erindi og fyrirlestra – auk þess sem ég er sífellt að átta mig á hvernig ýmis atriði, m.a.s. tæknileg leiklistaratriði, nýtast beint í markaðsmálunum.
Í dag er ég búin að vera “í markaðsbransanum” í rúman áratug, svo ég tel mig hafa sýnt fram á að ég veit eitthvað hvað ég syng í þeim málum. Í dag er ég tilbúin til að koma fram og segja: “Ég heiti Þóranna, ég var leikkona, er enn söngkona, OG ER markaðsnörd!” – í dag ætla ég að breiða út fjaðrirnar og vera páfugl – og þeir sem ekki fíla það eru hvort eð er ekki rétta fólkið fyrir mig :)
Hver ert þú? Hvað hefur þú verið að fela? Hvað er það sem gerir þig sérstaka(n)? Ætlarðu ekki að fara að breiða út páfuglafjaðrirnar þínar?! ;)

Written by Thoranna · Categorized: íslenskt · Tagged: draumaviðskiptavinur, hugrekki, markhópur

Ekki vera hrædd(ur) við að þrengja…

ekki vera hrædd við að þrengja - thoranna.is

Þetta er klassískt í markaðsfræðunum og ég hef talað um þetta margoft áður. Finndu markhópinn þinn, þann sem er vænlegastur fyrir þig, og markaðssettu á hann. Ekki reyna að vera allt fyrir alla. Finndu drauma viðskiptavininn og finndu svo fleiri svoleiðis.

En það er ekkert auðvelt. Og það hræðir mann líka. Maður er alltaf meðvitaður um að maður gæti verið að missa af einhverjum sem gæti mögulega, kannski, fræðilega séð, keypt. Við gerum þetta öll. Ég geri þetta sjálf. Ég þarf alltaf að vera að minna mig á að velja og þrengja – reyna ekki að vera allt fyrir alla.
Hingað til hef ég skilgreint markhópinn minn sem lítil og meðalstór fyrirtæki sem eru ekki sérfræðingar í markaðsmálum en þurfa að, og vilja, bæta þau. Flott mál. En vá hvað þetta er ennþá vítt! Svo ég er alltaf að skoða málin, spá og spekúlera, ræða við fólk og stilla til.
Ég hef íhugað að þrengja þetta þannig að þetta séu ofangreindir aðilar en í ákveðnum greinum. Það myndi líta einhvern veginn svona út – t.d. hótelmarkaðssetning frá A til Z, eða markaðssetja endurskoðendur frá A til Z eða markaðssetja fatahönnuði frá A til Z – ég væri í öllum bleiku hringjunum:
Maður gæti alveg orðið ansi góður í þeim markaðsaðgerðum sem ættu við þennan tiltekna bransa sem maður veldi. Þetta gæti alveg virkað. Eeeeeeen nei, það einhvern veginn virkar ekki fyrir mig. Ég er ekki sérfræðingur í ákveðnum greinum, per se,  og ég vil ekki vera það.
Ég veit hinsvegar að ég er sterkust og ánægðust þegar ég er að vinna í markaðsstefnunni, brandinu og að velja þær markaðsaðgerðir sem henta. Þegar kemur að þessum markaðsaðgerðum – því að setja upp póstlistann, nota Facebook o.s.frv. þá missi ég svolítið áhugann. Ég kann ýmislegt í því, ég gæti það alveg, en maður getur ekki verið allt fyrir alla og það eru mjög færir aðilar til sem eru sérfræðingar í því, en ekki svo góðir í því sem ég er góð í. Þannig að ég er komin á það að þetta er hinn valmöguleikinn:
Þetta er það sem ég vel. Að vinna í kjarna stefnunni, brandinu og velja þær markaðsaðgerðir sem best koma því til skila til markaðarins.
En hvað þýðir það þegar kemur að því að skilgreina markhópinn minn? Hmmm… draumaviðskiptavinurinn…
  • hún/hann þarf að hafa metnað til að vilja geta betur, betur og enn betur
  • hann/hún þarf að vilja byggja upp framúrskarandi fyrirtæki – ekki bara eitthvað sem gengur
  • hún/hann þarf að vilja breyta heiminum með fyrirtækinu sínu – ekki endilega öllum, en a.m.k. sínu litla horni af honum
  • hann/hún þarf að vilja byggja upp fyrirtæki sem er einstakt, öðruvísi og áhugavert
  • hún/hann þarf að vera tílbúin(n) að leggja á sig þá vinnu sem til þarf
  • hann/hún þarf að vera óhrædd(ur) – ja, tilbúinn að taka á hræðslunni
Því að maður verður alveg hræddur þegar maður er að reyna að breyta þó ekki sé nema litlu horni af heiminum. Maður verður hræddur þegar maður stefnir hærra og lengra en hinir. En það eru þeir sem takast á við þessa hræðslu sem fá að njóta þess að gera eitthvað sem skiptir máli.

Written by Thoranna · Categorized: íslenskt · Tagged: Branding, draumaviðskiptavinur, góðir viðskiptavinir, markhópagreining, markhópur

  • Facebook
  • Instagram
  • LinkedIn
  • Twitter

© 2023 Thoranna.is · Rainmaker Platform