Við vinnum saman til að ná sem allra mestu úr markaðsstarfinu þínu með notkun strategískrar stafrænnar markaðssetningar. Saman þróum við stefnu, áætlanir og kerfi svo þú vitir nákvæmlega hvað þarf að gera til að ná árangri.
Þú færð mesta virðið út úr mér þegar ég vinn með þér í að byggja upp markaðsstarfið, ýmist frá grunni eða með uppfærslu og endurbótum á fyrirliggjandi markaðsstarfi, og með því að vinna náið með þér og teyminu þínu. Í kjölfarið er mikilvægt að tryggja árangur til framtíðar með þekkingarstjórnun, ferlun, sífelldri þróun og lærdómi. Við eigum stöðugt að vera að læra, þróast, breyta og bæta, hvort sem er í markaðsstarfinu eða lífinu sjálfu.
Styrkleikar mínir og áherslur í markaðsmálunum liggja í stefnumótun og áætlunargerð, en sterkust er ég í að byggja upp „inbound“ stafrænt markaðskerfi sem leiðir fólk frá fyrstu snertingu til kaupa, endurtekinna kaupa og til að viðskiptavinirnir þínir verði þín besta markaðssetning. Kjarni kerfisins liggur í efnismarkaðssetningu, samfélagsmiðlum, markaðssetningu með tölvupósti, auglýsingum og leitarvélabestun, auk þess að nýta aðrar leiðir eftir því sem við á, þ.m.t. samþættingu við hefðbundna miðla.
Ég hef unnið að markaðsmálum í yfir tvo áratugi, sl. áratug eða svo með áherslu á stafrænu hliðina. Reynslan spannar allt frá störfum innan erlendra og innlendra auglýsingastofa, markaðssetningar innan fjármála- og upplýsingatæknigeirans, ráðgjafar og kennslu, lengri og styttri verkefna með fjölbreyttum og spennandi fyrirtækjum á borð við AwareGO, SimplyBook.me, Sóley Organics og margra fleiri. Síðastliðin ár hef ég byggt upp markaðs- kynningar- og viðburðastarf SVÞ – Samtaka verslunar og þjónustu og verið upphafsmanneskja og verkefnastjóri þess sem í dag er Stafrænn hæfniklasi. Þú getur kíkt á LinkedIn prófílinn minn til að fá meiri upplýsingar, og endilega sendu mér tengingarbeiðni.
Mér hefur verið sagt að ég sé einstaklega góður fyrirlesari, bæði fræðandi en ekki síst lífleg og skemmtileg. Þar hjálpar væntanlega margra ára reynsla (og menntun sem leikkona!). Ég hef einnig haldið námskeið og vinnustofur og kennt víða. Það gagnast m.a. vel innan fyrirtækisins þíns og tilvalið að fá mig til að fræða fólkið þitt til að ná sem bestum skilning, og árangri.
Markaðsmálin lít ég sömu augum og stjórnunargúrúinn Peter Drucker, sem sagði:
“…markmiðið með markaðssetningu er að gera sölumennsku óþarfa. Markmiðið með markaðssetningu er að þekkja og skilja viðskiptavininn svo vel að varan eða þjónustan henti honum og selji sig sjálf. Þegar best lætur leiðir markaðssetning til þess að viðskiptavinurinn er tilbúinn til að kaupa. Allt sem á að þurfa að gera er að sjá til þess að hægt sé að fá vöruna eða þjónustuna.”
Truflun (e. disruption), sköpunargleði, framfarahugarfar (e. growth mindset), metnaður, húmor og gleði eru lykilatriði í markaðsstarfi og hjá mér. Mannleiki og persónuleg nálgun ná alltaf lengra en formlegheit og andlitslaus fyrirtæki.
Við vinnum best saman ef þú og fyrirtækið þitt búið yfir metnaði, fagnið áskorunum og viljið sífellt bæta ykkur og læra meira. Já, og ef þið eruð skemmtileg. Það er nógu margt í lífinu sem ekki er skemmtilegt, þannig að ef maður getur gert það skemmtilegt þá á maður að gera það!
Kynntu þér hvernig við getum unnið saman með ráðgjöf og/eða samstarfi og vinnustofum, eða fyrirlestrum og fræðslu sem gagnast fyrirtækinu þínu. Eða til lengri tíma.
Hafðu samband. Ég hlakka til að heyra frá þér!
Bkv.
Þóranna