Markaðsmál eiga það til að hafa á sér þá ímynd að markaðsfólk læri einfaldlega að troða upp á mann allskonar hlutum sem maður þarf ekki. Það er hinsvegar mikill misskilningur. Markaðsstarf snýst um að mæta þörfum fólks, og svo þarf maður að láta fólk vita að maður getur mætt þörfum þess, leyst vandamál þess o.s.frv. Það gerir ekkert gagn að geta gert gagn en gera það svo ekki vegna þess að enginn veit af því, eða fólk áttar sig ekki á því hvað maður gerir fyrir það ;) Gott dæmi um hvernig nýta má markaðsfræðin algjörlega til góðs var þegar Sigurbjörg Daníelsdóttir, ráðgjafi hjá … [Read more...]
Og hvað kostar þetta svo? – verðlagning er oftast hausverkur
Du du duuuuuuuuuuuu.... (lesist með tilþrifum :) UPPFÆRSLA! Hér getið þið heyrt akkúrat hvernig þetta "du du duuuuuuu" á að hljóma!: http://youtu.be/UBd7dloQI6E - takk Sandra Karls fyrir að senda mér ;) Þessi hræðilega spurning sem við óttumst öll. Þegar fólk spyr okkur hvað hlutirnir kosta. “S**t, er þetta allt of dýrt hjá mér?”, og svo þegar þú segir þeim það og þau kaupa strax “oh, hefði ég kannski getað fengið meira fyrir þetta?” Verðlagning er almennt ekkert einfalt mál. Jú, stundum er þetta bara spurning um að kanna hvað gengur og gerist með sambærilega vöru eða þjónustu á … [Read more...]
5 leiðir til að spara meiri tíma í markaðssetningu
Þessi blessaður tími! - okkur vantar alltaf meira af honum! “Time is on my side” sungu Rolling Stones. Svei mér þá, ég held þeir séu þeir einu sem það á við um! Alveg sama við hvern maður talar, hvert maður snýr sér og hvað maður gerir, það hefur enginn tíma. Í sumar hef ég gert tvær kannanir meðal fólks í fyrirtækjarekstri og rauði þráðurinn, gegnumgangandi er að fólk vantar tíma. Það hefur ekki tíma í markaðsstarfið, það hefur ekki tíma til að læra að gera markaðsstarfið hagkvæmara þannig að það nái meiri árangri með það á minni tíma. Það hefur ekki