Við sem eigum eða stýrum minni fyrirtækjum þekkjum þetta öll. Að vera með marga hatta á hverjum degi. Það er í mörg horn að líta og margt sem þarf að huga að, því að þó að fyrirtækið sé ekki stórt, þá er breiddin í verkefnunum oft jafn mikil og í stærri fyrirtækjum, en við erum ekki með sérstakan starfsmenn í hverri deild – hvað þá heila deild af fólki!
Ef við bætist að vera frumkvöðull að byggja upp þitt eigið fyrirtæki, þá er auðvelt að detta í þá gryfju að finnast maður þurfa að gera allt sjálfur og vita allt, því að ef maður getur jú bjargað hlutunum sjálfur þá þarf maður ekki að borga öðrum fyrir að gera þá og sparar þar með peninga. Ekki satt?
Gengur dæmið upp?
En hvað gerist þá? Gengur dæmið upp?
Svarið er einfaldlega nei. Það getur mallað áfram. Fyrirtækið getur mögulega lifað af, en það verður aldrei meira en það. Það mun aldrei blómstra. Það mun aldrei veita þér þá ánægju sem þú leitar eftir og í stað þess að eiga og reka fyrirtæki ertu einfaldlega starfsmaður með harðasta yfirmann allra – þig! Og kulnun er mjög raunveruleg áhætta.
Staðreyndin er sú að það er jú gott að hafa góða yfirsýn yfir allar hliðar fyrirtækisins sem maður er að stýra og skilning á því hvað hvert og eitt svið felur í sér þannig að maður geti séð heildarmyndina og hafi vit á því sem er í gangi. En maður getur ekki verið sérfræðingur í öllu og maður hefur bara 24 tíma í sólarhringnum. “One man show” er einfaldlega dæmt til að rétt lifa af – ef ekki bara dauðadæmt.
Ég hef lært þetta sjálf á eigin skinni. Jú, sumt af því sem ég hef gert í mínu fyrirtæki hefur verið nauðsynlegt fyrir mig til að átta mig á hvernig best er að gera það. Ég er jú ekki með fyrirtæki sem er að gera eins og gert hefur verið áður. Markaðsþjálfun á netinu hefur ekki verið til á Íslandi áður, og markaðsþjálfun á þann hátt sem ég er að gera hana virðist ekki vera þarna úti heldur (ekki misskilja mig, það er fullt af flottu fólki úti í hinum stóra heimi að kenna ýmislegt varðandi markaðsmálin í gegnum netið, en ég hef ekki fundið neinn enskumælandi sem er að kenna þetta á sama hátt og ég og flestir eru að kenna á ákveðin markaðstól og -tæki). Vöruþróunin og að finna út úr hinum ýmsu hlutum hefur því kallað á að ég sé innsti koppur í búri í flestum verkefnum framanaf.
Hinsvegar get ég ekki sagt þér hvað hlutirnir fóru að gerast miklu hraðar og verða mun öflugri þegar ég lærði að fá hjálp. Í dag er ég með aðstoðarmanneskju í að sjá um ýmis dagleg verkefni fyrir mig, manneskju sem aðstoðar mig við bloggið, aðila sem aðstoðar mig með vefinn minn og annan sem er að vinna með mér í lykilorðagreiningu og leitarvélabestun. Ég er að vinna í því að koma mér á erlendan markað, sem ég hefði aldrei náð að gera annars og ég sé fram á að fá hina ýmsu aðila í hin ýmsu verkefni í framtíðinni. Ég kann margt af þessu og gæti bjargað mér – ég hef yfirsýnina og heildarmyndina – en mínum tíma er einfaldlega betur varið í að þjónusta viðskiptavinina mína með því að þróa þjónustuna og veita hana og í að markaðssetja mig.
Strategía og taktík
Það er einmitt hugsunin á bak við MáM þjálfunina að sjá stóru myndina og hafa grundvallarskilninginn sem maður þarf á markaðsmálum, geta mótað stefnuna og vita hvað maður á að gera. Ég mæli síðan ekkert endilega með því að þú græjir allt og gerir – verðir sérfræðingur í póstlistaforritum, vefgerð, öllum mögulegum og ómögulegum samfélagsmiðlum og hvað þetta allt er. Satt best að segja mæli ég eindregið með því að fá síðan sérfræðinga til að sjá um það um leið og þú hefur tök á því (sem er yfirleitt fyrr en maður heldur) – en með góðri yfirsýn og skilningi á því hvað þessi sérfræðingar sem maður kaupir þjónustu frá eru að gera þá er maður bæði upplýstari kaupandi að þjónustunni og getur haldið betur utan um heildardæmið. En heildarstefnan (e. strategy) þarf að vera þín. Aðgerðirnar (e. tactics) er svo hægt að fá hjálp með.