Ef þig vantar aðstoð við markaðsstarfið þá ertu á réttum stað
Gerir þú þér grein fyrir því að markaðsstarfið er lífæð fyrirtækisins en ert ekkert alveg að rokka feitt í því?
Ég get hjálpað. Saman tryggjum við að þú farir í gegnum það sem þú þarft að vita og kunna til að geta keyrt áfram markaðsstarfið hjá fyrirtækinu þínu. Þú þarft ekki lengur að klóra þér í hausnum og snúast í hringi prófandi þetta í dag og hitt á morgun. Fylgdu mér bara og þú kemst þangað sem þú ætlar þér, hvort sem það er bara í gegnum MáM þjálfunina á netinu, eða með nánara samstarfi.
Viltu fá skýra stefnu og skilvirkt prógramm til að fylgja eftir í markaðsmálunum?
Við byrjum á því að leggja niður góðan grunn með markaðsstefnu sem felur í sér greiningu á markhópunum þínum, samkeppninni og byggt á því byggjum við upp brand stefnu sem veitir þér aðgreiningu á markaði.
Við finnum þau markaðstól og tæki sem henta þér og þínu fyrirtæki, setjum þau upp þannig að þau spili saman á sem árangursíkastan hátt og forgangsröðum þeim þannig að við vitum nákvæmlega hvar er best að byrja og hvað kemur næst.
Við setjum markaðsstarfið upp í kerfi, svo að við vitum alltaf hvað á að gera hvenær og það tryggir samfellt og þar með árangursríkt markaðsstarf.
Ég luma líka á fullt af hugmyndum að fleiri hlutum sem hægt er að gera í markaðsstarfinu síðar meir, þegar kjarnamarkaðsstarfsemin er farin að ganga eins og vel smurð vél.
Viltu ekki ráða fastan starfsmann í markaðsstarfið, en vantar einhvern með þekkingu og reynslu til að vinna með þér í þeim?
Þú getur reynt að verða sérfræðingur í öllu sem þarf að gera í fyrirtækinu, lesið bækur og farið á námskeið o.s.frv. og ég er á því að maður þurfi að hafa grundvallarþekkingu á öllum hliðum reksturins – en maður getur aldrei vitað allt og verið allt. Þá er gott að geta kallað inn sérfræðingana, þegar þeirra er þörf.
Ég legg áherslu á að þú sért inni í málunum – þetta er jú þitt fyrirtæki, og þú átt að þekkja það út og inn – en þú þú þarft ekki að vera ein(n) í þessu. Þegar þú hefur lagt sterkan grunn að markaðsstarfinu með MáM þjálfun á netinu geturðu haft sérfræðing til taks þegar á þarf að halda, en þarft ekki að bera kostnaðinn af honum þegar ekki er þörf. Það má segja að þú sért með markaðsráðgjafann í tölvunni ;)
Hefurðu góða þekkingu á markaðsmálunum en ert ein(n) að vasast í þeim og vilt stundum geta hent hlutum á milli, fengið álit eða tekið hugarflug?
Stundum er erfitt að vera einn í hlutunum, alveg sama hvað maður er klár í þeim. Ég er með þónokkuð af viðskiptavinum sem hafa mjög góða þekkingu á markaðsmálunum en hafa fengið mikið út úr því að fara í gegnum MáM þjálfunina og að geta svo alltaf komið til mín í tíma til að ræða málin, fá speglun, endurgjöf, hugmyndir eða taka saman hugarflug – ja, eða bara hvað annað sem þeim dettur í hug. Það gæti verið þú ;)
Vilt þú ná hámarksárangri í markaðsstarfinu með lágmarks fyrirhöfn og fjármagni?
Allt sem ég geri er byggt á sterkum markaðslegum grunni, og hugmyndafræði skæruliðamarkaðssetningarinnar. Kjarnaatriði í henni er að ná sem mestum árangri með sem minnstum tilkostnaði og fyrirhöfn. Árangur er ekki mældur í sölu heldur í hagnaði – það er auðvelt að selja eins og brjálæðingur með því að eyða fullt af tíma og peningum í sölu- og markaðsstarf, en þá situr ekkert eftir. Þess vegna þarf þekkingu, útsjónarsemi og fagmannleg vinnubrögð til að ná sem bestum árangri á sem hagkvæmastan hátt.
Ég er ekki hluti af auglýsingastofu, almannatengslastofu, vefhönnunarfyrirtæki eða öðru þess háttar. Ég hef engra hagsmuna að gæta af því að beina þér í aðra átt en þá sem er rétt fyrir fyrirtækið þitt. Ég hinsvegar hef góða reynslu af samstarfi við ýmsa aðila í ofangreindum geirum o.fl. svo að ég get alltaf komið þér í gott samband og get mælt með topp fólki.
Hefur þú metnað fyrir hönd fyrirtækisins þíns og vilt reka það á sem fagmannlegastan og áhrifaríkastan hátt?
Ef þú heldur að það sé hægt að ná árangri í markaðsstarfinu bara með vinstri og án þess að leggja nokkuð á sig, þá verð ég að segja þér núna að það er ekki hægt. Það er ekki til neinn markaðsálfur sem bara veifar sprotanum og “abrakadabra” það eru komnir viðskiptavinir. Það þarf mikla vinnu, þolinmæði, stefnufestu og tíma – og það borgar sig að gera hlutina vel frá byrjun – það getur sparað heilmikla vinnu og tíma síðar og þú nærð fyrr árangri. Ef þú gerir þér grein fyrir því og vilt gera hlutina almennilega, þá ertu á réttum stað.
Viltu hætta að reyna að finna upp hjólið og stytta þér frekar leið að árangri í markaðsmálunum?
Þá ertu á réttum stað ;)
Hafðu samband ef þú vilt ræða hvað við getum brallað gott saman :)
Netfang: thoranna@thoranna.is
Ég hlakka til að vinna með þér í að efla markaðsstarfið þitt!
