Vinnustofur, námskeið, fyrirlestrar, vefnámskeið…
Hvernig sem hentar best, þá er ljóst að þú getur bætt árangurinn af markaðsstarfinu þínu með því að læra meira. Ég býð upp á fræðslu um ýmislegt sem tengist markaðsstarfinu, en get einnig sérsniðið efni að þínum þörfum. Hér fyrir neðan sérðu nokkur dæmi. Það er hægt að fjalla um þetta allt ýmist með 1-2 klst fyrirlestri, 4 klst námskeiði eða sem 8 klst námskeið og vinnustofu.
Hafðu samband til að ræða málin.
Hvar hef ég verið áður?
Með fræðslu, fyrirlestra, mentorship o.fl.
- Atvinnuþróunarfélagi Suðurlands
- Austurbrú
- Bandalag háskólamanna
- Dokkan
- Endurmenntun Háskóla Íslands
- Frumkvöðlasetrinu Eldey á Ásbrú
- Hönnunarmiðstöð Íslands
- Katla Geopark / Matís
- Keilir – miðstöð vísinda, fræða og atvinnulífs
- Klak Innovit
- Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum
- Nýsköpunarhádegi Klaksins
- Nýsköpunarmiðstöð Íslands
- Samtök ferðaþjónustunnar
- Startup Energy
- Startup Reykjavik
- Start-up Weekend
- Rotary
- SASS og Fræðslunetið
- o.fl. o.fl.
Til að sjá örar uppfærðan lista, kíktu endilega á LinkedIn prófílinn minn hér.
Dæmi um fyrirlestra, námskeið og vinnustofur:
Hvert stefnir fyrirtækið þitt á markaði?
Farið er yfir stefnumótun í markaðsmálum, svo sem greiningu á markaðnum og samkeppnisaðilum, hverjir kaupa (markhópagreining) og af hverju, staðsetningu á markaði, ímynd, og stefnu í helstu þáttum, svo sem varðandi vöru, verðlag, dreifingu og kynningarmál. Námskeiðið/vinnustofan gerir þátttakendum kleift að móta skýra stefnu til árangurs fyrir fyrirtækið sitt.
Markaðssetning fyrir sérfræðinga
Markaðssetning fyrir sérfræðinga, ráðgjafa og fagfólk sem þurfa að koma sér á framfæri og byggja upp sérfræðiorðspor. Farið er yfir grundvallarstefnumótun fyrir markaðsstarfið en aðaláherslan er á leiðir til að koma sér á framfæri, byggja upp sýnileika og sérfræðiorðspor.
Kynntar eru yfir 50 leiðir, tól og tæki til að koma sér á framfæri, sem flestar eru fríar. Farið er yfir hvernig þú getur valið þau sem henta þér og hvernig hægt er að nýta þau markvisst og skipulega til að byggja upp sýnileika, sérfræðiorðspor og ná í viðskipti.
Markmiðið er að þátttakendur átti sig á þeim fjölmörgu leiðum sem í boði eru til að koma sér á framfæri og geti valið þær sem henta best og gert áætlun um hvernig viðkomandi ætlar að nota þær.
Branding – ímynd fyrirtækisins þíns
Hvað er “brand”? Hvers vegna skiptir ímynd fyrirtækisins þíns (brandið) máli. Hvernig er brand skapað og hvernig er því stýrt? Brandið er öflugasta markaðstólið svo það er dýrmætt að vita sem mest um þau mál.
Markaðsverkfærakistan þín
Farið er yfir um 300 tól og tæki sem nýtast í markaðssetningu og mörg hver eru ódýr eða jafnvel ókeypis. Í vinnustofunni velja þátttakendur úr þessum tólum og tækjum og meta hver þeirra henta best fyrir þeirra rekstur. Mælst er til að viðkomandi sé með skýra markaðsstefnu og þ.a.l. er gott að vera búin að taka námskeiðið “Hvert stefnir fyrirtækið þitt á markaði?” áður.
Efnismarkaðssetning
Hvaða efni á ég að senda út á Facebook, Twitter, LinkedIn, Pinterest o.s.frv. Hvað á ég að blogga um og hvað get ég sent fólki á póstlistanum mínum? Markaðssetning í dag snýst stöðugt meira um að dæla út efni sem fólk hefur áhuga á en er um leið að vinna fyrir þig (e. content marketing). Hér eru trixin á bak við öfluga efnismarkaðssetningu afhjúpuð ;)
Skæruliðamarkaðssetning (e. guerilla marketing)
Fyrir fyrirtæki með litla peninga en með orku, tíma og hugmyndaflug! Farið er yfir 16 RISA leyndarmál skæruliðamarkaðssetningar, 300+ vopn markaðsskæruliðans og kynnt skemmtileg dæmi um skæruliðamarkaðssetningu.
Undirbúningur að vefsíðugerð
Að hverju þarf að huga þegar farið er í vefsíðugerð? Hvernig getur þú sem best undirbúið þig til að vinnan með vefhönnuði og vefgerðarfólki verði sem árangursríkust, taki sem stystan tíma og verði sem hagstæðust? Markmiðið er að þú getir undirbúið þig sem best fyrir þessa vinnu. Einnig er bent á einfaldar og ódýrar leiðir til að setja upp vef á eigin spýtur.
Hvernig best er að vinna með auglýsingastofum og grafískum hönnuðum
Að hverju þarf að huga til að koma sem best undirbúinn til leiks þegar unnið er með auglýsingastofum, grafískum hönnuðum, vefhönnuðum o.fl. Góður undirbúningur skiptir öllu máli og getur haft gríðarleg áhrif bæði á verð og þann tíma sem verkefnið tekur.
Sérsniðið fyrir þig
Ef þú hefur hugmynd að efni sem snertir markaðsmálin hafðu samband – það er alltaf hægt að sérsníða að þínum þörfum :)
Viltu sjá mig “in action”?
Nýsköpunarhádegi Klaks – nýsköpunar-miðstöðvar atvinnulifsins, Landsbankans, Stjórnvísi, Samtaka iðnaðarins og Viðskiptablaðsins, 25. febrúar 2014. Efnismarkaðssetning.