Ég var í heimsókn hjá honum Hauki félaga mínum, raðfrumkvöðli með meiru, sem heldur úti síðunni frumkvodlar.is – ef þú ert ekki nú þegar að fylgjast með honum, þá mæli ég með því að þú bætir úr því hið snarasta :)
Við gripum tækifærið og hann tók upp við mig stutt viðtal um markaðsmálin. Hann dró aðalatriði saman í:
1. Taktu góðan tíma til að vinna undirbúningsvinnuna rétt.
2. Skilgreindu vörumerkið vel og hvað felst í því.
3. Tengdu markaðssetninguna við lífsgildi þín og viðskiptavina þinna.
Þú getur séð viðtalið í heild sinni hér (6:20 min) :)