Mér hefur verið sagt að ég sé fínasti fyrirlesari. Þar hjálpar væntanlega margra ára reynsla og menntun sem leikkona! En líka mörg mörg ár af fyrirlestrum, kennslu og vinnustofum.
Hvort sem það eru fyrirtæki, fræðslubatterí eða félagasamtök þá eru góðar líkur á að ég geti talað, frætt og unnið með hluti sem koma að gagni – ef þeir tengjast stafræna markaðsstarfinu þ.e.a.s.
Ef þú hefur áhuga fyrirlestri, fræðslu eða vinnustofu, eða vilt einfaldlega fá frekari upplýsingar, vinsamlegast fylltu út formið hér fyrir neðan eða sendu tölvupóst á thoranna(a)thoranna.is með sömu upplýsingum og beðið er um á forminu.
Ég mun svo hafa samband símleiðis til að fá frekari upplýsingar. Ef ég er rétta manneskjan fyrir þau efnistök sem þú þarft á að halda þá förum við að undirbúa málin. Ef ekki, þá mun ég gera mitt allra besta til að vísa þér á góðan aðila sem gæti verið réttur fyrir þig.