Velkomin! Hér finnur þú upplýsingar og efni um Þórönnu K. Jónsdóttur, MáM og MáM þjálfunina.
Ef þig vantar frekari upplýsingar, ekki hika við að hafa samband:
Þóranna K. Jónsdóttir
Sími: 841 5800
Netfang: thoranna@thoranna.is
Hver er Þóranna K. Jónsdóttir
Þóranna lauk MBA prófi með áherslu á strategíska markaðsstjórnun frá University of Westminster 2003, eftir að hafa menntað sig og starfað sem söng- og leikkona í London um árabil. Hún bjó í London í 8 ár en snéri heim til Íslands, kasólétt með MBA gráðu og starfsreynslu af einni stærstu auglýsingastofu heims í farteskinu. Eftir fæðingarorlof starfaði Þóranna fyrir mörg af stærstu fyrirtækjum landsins hjá Góðu fólki McCann sem markaðsráðgjafi, sem sérfræðingur á markaðssviði hjá Sparisjóðnum og kom á fót Frumkvöðlasetrinu í Eldey á Ásbrú sem verkefnastjóri hjá Kadeco. Árið 2011 hætti hún störfum hjá Kadeco og einbeitti sér að því sem í dag er MáM, eða Markaðsmál á mannamáli.
Auk þess að byggja upp MáM starfar Þóranna sem markaðsráðgjafi, vinnur með hinum ýmsu fyrirtækjum að því að efla markaðsstarfið þeirra, heldur víða fyrirlestra (sem hún elskar að gera :) og kennir þegar tækifæri gefst til.
Þú getur fengið nánari upplýsingar um Þórönnu hér, og á LinkedIn prófílnum hennar.
Hvað er MáM?
Markmiðið með Markaðsmálum á mannamáli, eða MáM, er að efla markaðslega færni fyrirtækja og einyrkja sem ekki eru sérfræðingar í markaðsmálunum. Markaðsstarfið nær í viðskiptavini og án viðskiptavina er ekkert fyrirtæki. MáM vill að framúrskarandi vörur og þjónusta fái að blómstra í stað þess að deyja bara vegna þess að markaðslega færni vantar.
MáM eflir markaðsstarf fyrirtækja með þjálfun á netinu, ráðgjöf og fleiru. Þjálfunin byggist á sterkum akademískum grunni með miklum áhrifum frá hugmyndafræðin skæruliðamarkaðssetningar og áherslu á stefnumótun og “branding” sem grundvallaratriði og kjarna markaðsstarfsins. Á vefsíðunni MaM.is geturðu fengið að vita allt um MáM þjálfunina.
Viltu skoða MáM?
Hafðu samband til að fá skoðunaraðgang: 841 5800 eða thoranna@thoranna.is
Fjölmiðlaumfjöllun, greinar o.fl.
Visir.is, 10. desember 2014
“Er það nú góður bissness?”
Hluti af reglulegum pistlum á vegum FKA
Kvennablaðið, 4. desember 2014
Viðtal “Bleik bók sem leysir markaðsmálaflækjuna”
Reykjavík síðdegis, Bylgjan, 3. desember 2014
Viðtal: “Íslendingar eiga það til að rjúka til í markaðssetningu.”
Mbl.is Viðskipti, 1. desember 2014
“Markaðsmál oftast orsökin”
Visir.is, 21. maí 2014
“Þorirðu, viltu og geturðu?”
Hluti af reglulegum pistlum á vegum FKA
Fréttablaðið, 22. janúar 2014
“Hættu að rembast við að selja”
Hluti af reglulegum pistlum á vegum FKA
Markaðurinn, fylgirit Fréttablaðsins, 16. október 2013
“Markaðsfólk er ekki með horn og hala”
Hluti af reglulegum pistlum á vegum FKA
Innblastur.is – Markaðsnörd með leikarapróf, 8. október 2013
Innblastur.is – Starfsmaðurinn, 24. september 2013
FKA blaðið, vor 2013
“Taktu skref til baka – markaðsstarfið þitt mun eflast við það”, grein.
Morgunútvarp Rásar 2, 18. febrúar 2013
Viðtal um skæruliðamarkaðssetningu í tilefni af fyrirlestri á Nýsköpunarhádegi Klaks 19. feb 2013
Fréttablaðið, sérblað um myndavélar, 8. des 2012
“Myndir tengja saman heiminn” – umfjöllun um Pinterest
Frumkvöðlar á ÍNN, 29. október 2012
Viðtal um Markaðsmál á mannamáli
Frjáls verslun, 7. tbl, 2012, bls. 38
MáM á lista yfir 100 áhugaverð íslensk sprotafyrirtæki
Viðskiptaráð Íslands, vi.is, 28. september 2012
Umfjöllun um “Mentor dinner” Viðskiptaráðs og Innovit sem MáM var hluti af
Ásbrúarbloggið, 19. september 2012
Viðtal: Vertu karakter
Morgunblaðið, 30. ágúst 2012, bls. 10
“Atvinnulífið verðlaunar rangar dyggðir” – umfjöllun um konur í íslensku atvinnulífi
Frumkvodlar.is, 26. mars 2012
Viðtal um Markaðsmál á mannamáli í tilefni þess að viðskiptaáætlunin var í topp 10 í Gullegginu, viðskiptaáætlunarkeppni Innovit