Náðu hámarks árangri úr markaðssetningu með tölvupósti með sérsniðinni strategíu og áætlun, og áframhaldandi þjónustu og stuðningi eftir því sem ykkur hentar.
Veldu þá þjónustuleið sem hentar fyrirtækinu þínu best:
Sjálfstýrt með stuðningi
Tilvalið ef þið viljið sjá um tölvupóstmarkaðssetninguna innanhúss en fá sérfræðing til að byggja með ykkur traustan grunn og vera til staðar ef á þarf að halda.
- Stöðutaka: Ef þið eruð þegar að nota tölvupóst í markaðssetningu förum við yfir það sem þið hafið verið að gera og metum hverju þarf að breyta.
- Stefnumótun og áætlun: Við vinnum saman að því að móta sérsniðna stefnu og áætlun fyrir tölvupóstsmarkaðssetninguna ykkar, þ.á.m. samþættingu við markaðsaðgerðir á borð við efnismarkaðssetningu og markaðssetningu á samfélagsmiðlum.
- Tól og tæki: Ef þið eruð ekki með hugbúnað fyrir tölvupóstsmarkaðssetninguna nú þegar aðstoða ég ykkur við að finna réttu lausnina og aðstoða ýmist við uppsetningu eða kem ykkur í samband við góða aðila til þess. Ef þið eruð með kerfi nú þegar förum við yfir uppsetninguna á því.
- Leiðbeiningar og ráð: Þið fáið leiðbeiningar og ráð sem hjálpa þér og teyminu þínu að straumlínulaga vinnsluferli og gera notkunina eins skilvirka og hægt er, þ.á.m. hvernig hægt er að nýta ChatGPT í þeim tilgangi.
- Sjálfbær: Þið sjáið um daglega keyrslu en hafið skýrt skipulag og leiðbeiningar til að hámarka árangur en lágmarka tíma og fjárfestingu.
- Áframhaldandi stuðningur: Í framhaldinu getið þið fengið áframhaldandi stuðning í formi mánaðarlegra funda og stöðutöku í lok hvers ársfjórðungs, með sérsniðnum tillögum og ráðum fyrir framhaldið.
Hafðu samband til að ræða hvernig ég get aðstoðað þig við að ná sem bestum árangri í markaðssetningunni ykkar með tölvupósti.
Samþætt samstarf
Fullkomin blanda af ráðgjöf, leiðsögn og samstarfi. Hentar fyrirtækjum sem vilja samstarfsaðila í tölvupóstmarkaðssetningunni.
- Stöðutaka: Ef þið eruð þegar að nota tölvupóst í markaðssetningu förum við yfir það sem þið hafið verið að gera og metum hverju þarf að breyta.
- Stefnumótun og áætlun: Þróum heildstæða stefnu og áætlun sem er sérsniðin að ykkar þörfum og samþætt við aðrar markaðssetningu s.s. efnismarkaðssetningu og markaðssetningu á samfélagsmiðlum.
- Virkt samstarf: Skilgreinum skýrt hlutverk í framleiðslu og dreifingu.
- Árangursmælingar: Ég sé um að skipuleggja árangursmælingar, setja upp ferla fyrir þær eða sjá alfarið um þær.
- Stuðningur og regluleg samskipti: Ég er til staðar þegar á þarf að halda, auk þess sem við tökum reglulega mánaðarlega verkefnafundi og ársfjórðungslega fundi til að fara nánar yfir árangur og plana framhaldið.
Hafðu samband til að ræða hvernig ég get aðstoðað þig við að ná sem bestum árangri í markaðssetningunni ykkar með tölvupósti.
Allur pakkinn
Ég sé um allan pakkann – allt sem snýr að tölvupóstsmarkaðssetningunni ykkar.
- Allt úr pökkunum fyrir ofan plús
- Umsjón frá A-Ö: Allt frá stefnumótun til beinnar framkvæmdar.
- Lágmarksþátttaka ykkar: Ég þarf upplýsingar, álit og samþykki þegar við á.
- Efnisgerð: Efnisgerð eða umsjón með efnisgerð eftir því sem við á.
- Regluleg upplýsingagjöf frá mér og endurgjöf frá ykkur.
- Alhliða stuðningur: Stöðugt eftirlit, fínstillingar og skýrslugjöf til að tryggja hámarksárangur.
Það sem ég þarf frá ykkur: Heildar markaðsstefna og markaðs- og efnisdagatöl*, upplýsingar um núverandi efnismarkaðssetningu og markaðssetningu á samfélagsmiðlum. Upplýsingar um úr hverju þið hafið að spila (s.s. fjármagni, mannskap og öðru slíku).
*Ef þið hafið þetta ekki nú þegar get ég aðstoðað ykkur við það sérstaklega.
Hafðu samband til að ræða hvernig ég get aðstoðað þig við að ná sem bestum árangri í markaðssetningunni ykkar með tölvupósti.
Verðlagning fer eftir þeirri þjónustuleið sem er valin og umfangi tölvupóstsmarkaðssetningarinnar hjá ykkur. Verðið er alltaf gefið upp fyrirfram og skýrt hvað er innifalið og hvað ekki, hvað ég þarf frá ykkur og hvað þið fáið frá mér. Þið vitið því alltaf að hverju þið gangið.
Samanburður
Þjónustuþættir | Sjálfstýrt með stuðningi | Samspil | Allur pakkinn |
---|---|---|---|
Stöðutaka | ✔ | ✔ | ✔ |
Sérsniðin stefnumótun og áætlunargerð | ✔ | ✔ | ✔ |
Val/skoðun á tólum og tækjum | ✔ | ✔ | ✔ |
Leiðbeiningar | ✔ | ✔ | ✔ |
Efnisgerð | x | x | ✔ |
Uppsetning á mælingum/ mælingakerfi | Áætlun og aðstoð við þróun ferla | ✔ | ✔ |
Áframhaldandi stuðningur | Keyptur sérstaklega | ✔ | ✔ |
Mánaðarlegir verkefnafundir | x | ✔ | ✔ |
Ársfjórðungsleg stöðutaka og ráðgjöf | x | ✔ | ✔ |
Framkvæmd og verkumsjón | x | x | ✔ |