Í samstarfi vinn ég með fyrirtækinu þínu að afmörkuðu verkefni yfir styttri eða lengri tíma. Verkefnin eru unnin ýmist innan fyrirtækisins, í fjarvinnu eða blandað.
Við skoðum saman hvað þú þarft og hvort ég get ekki græjað það með þér og þínu fólki.

Dæmi um verkefni
Listinn er ekki tæmandi
- Stefnumótun og stýring á verkum ytri aðila sem koma að stefnumótuninni (s.s. rannsóknarfyrirtækis)
- Greiningar á stöðu markaðsstefnu og -starfs fyrirtækisins
- Gerð markaðsaðgerðaáætlunar
- Gerð aðgerðaáætlunar og/eða verkáætlunar
- Innleiðing aðgerða í framhaldi af áætlanagerð, almennt með því að stýra innleiðingunni í samstarfi við starfsfólk fyrirtækisins eða starfsfólkið leiðir og ég er þeim innan handar
- Mótun og áætlanagerð fyrir innri markaðssetningu fyrirtæksins
- Möppun markaðskerfis (funnelar, tölvupóstsferlar, annað sem við á)
- Uppsetning maraðskerfis
- Möppun á vegferð viðskiptavinar þar sem markaðssetning kemur að henni og greining á því hvernig bæta má markaðssetningu á öllum snertipunktum
- Gerð efnismarkaðssetningarstefnu og/eða áætlunar
- Gerð samfélagsmiðlastefnu og/eða áætlunar
- Mótun brand stefnu
- Undirbúningur og verkstýring hönnunar á útliti brands (e.g. visual identity)
- Sköpun tungumáls og -tóns fyrir brandið þitt
- Ferlun á hinum ýmsu verkefnum í markaðsstarfinu sem tryggir að verið sé að vinna á sem áhrifaríkastan hátt hverju sinni og hægt sé að besta starfsemina
Ef þú hefur áhuga á samstarfi, eða vilt einfaldlega fá frekari upplýsingar, vinsamlegast fylltu út formið hér fyrir neðan eða sendu tölvupóst á thoranna(a)thoranna.is með sömu upplýsingum og beðið erum á forminu.
Ég mun svo hafa samband símleiðis til að fá frekari upplýsingar um verkefnið. Ef ég met það svo að fyrirtækið þitt geti notið góðs af ráðgjöf minni þá bókum við fund í framhaldinu, annars geri ég mitt besta til að vísa þér þangað sem ég tel að muni hjálpa þér.